Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna bjóða ASÍ, BHM, BSRB, Kennarasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands til rafræns hádegisfundar 8. mars kl. 12–13. Yfirskrift fundarins er Konur í kafi – kynjajafnrétti á tímum heimsfaraldurs.
Slóð á viðburð: https://us02web.zoom.us/j/85277321283
Dagskrá:
- „Bakslag eða afhúpun: Heimilislíf og jafnrétti í fyrstu bylgju Covid frá sjónarhóli mæðra.“ Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, lektor í félagsfræði við HA, og Valgerður S. Bjarnadóttir, nýdoktor við menntavísindasvið HÍ.
- „Framlínukonur á tímum Covid.“ Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
- „Spritta, tengjast, vinna.“ Donata Honkowicz-Bukowska, grunnskólakennari og kennsluráðgjafi í málefnum nemenda með íslensku sem annað mál.
- Umræður
Fundarstjóri er Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Fundur er túlkaður á ensku. Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur fljótlega eftir honum lýkur.