Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna bjóða ASÍ, BHM, BSRB, Kennarasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands til rafræns hádegisfundar 8. mars kl. 12–13. Yfirskrift fundarins er Konur í kafi – kynjajafnrétti á tímum heimsfaraldurs.

Slóð á viðburð: https://us02web.zoom.us/j/85277321283

Dagskrá:

  • „Bakslag eða afhúpun: Heimilislíf og jafnrétti í fyrstu bylgju Covid frá sjónarhóli mæðra.“ Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, lektor í félagsfræði við HA, og Valgerður S. Bjarnadóttir, nýdoktor við menntavísindasvið HÍ.
  • „Framlínukonur á tímum Covid.“ Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
  • „Spritta, tengjast, vinna.“ Donata Honkowicz-Bukowska, grunnskólakennari og kennsluráðgjafi í málefnum nemenda með íslensku sem annað mál.
  • Umræður

Fundarstjóri er Drífa Snædal, forseti ASÍ.

Fundur er túlkaður á ensku. Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur fljótlega eftir honum lýkur.