konur sem stjórna_mynd

Konur á Alþingi hafa brotið glerþakið og eru í dag 46% þingmanna. Kynjahlutfallið hefur aldrei verið jafnara.

Meirihluti þeirra flokka sem nú bjóða fram lista í alþingiskosningum tryggja að kynjahlutfallið sé sem jafnast, en ekki allir. Hver er reynsla kvenna af starfi á Alþingi? Hver er reynsla kvenna í stjórnmálum og á opinberum vettvangi? Skiptir máli að tryggja jafna þátttöku kynjanna í pólitík?

Hvað segja konur í pólitík?

Fimmtudaginn 8. september kl. 20 heldur Kvenréttindafélag Íslands fund um konur í pólitík í samstarfi við kvennahreyfingar stjórnmálaflokkanna sem nú sitja á þingi. Fundurinn er haldinn á Hallveigarstöðum.

  • Fríða Rós Valdimarsdóttir formaður Kvenréttindafélagsins býður gesti velkomna
  • Sigríður Dúna Kristmundsdóttir talar tæpitungulaust um konur og pólitík

Konur í pólitík ávarpa fundinn

  • Ásta Guðrún Helgadóttir (Píratar)
  • Björt Ólafsdóttir (Björt framtíð)
  • Hanna Birna Kristjánsdóttir (Sjálfstæðisflokkur)
  • Katrín Júlíusdóttir (Samfylking)
  • Lilja Dögg Alfreðsdóttir (Framsóknarflokkur)
  • Sigrún Ingibjörg Gísladóttir (Viðreisn)
  • Svandís Svavarsdóttir (Vinstri hreyfingin – grænt framboð)

Steinunn Stefánsdóttir stýrir fundi.  Léttar veitingar. Öll velkomin!

Aðrar fréttir