Konur vinna ókeypis eftir kl. 14:56

Konur vinna ókeypis eftir kl. 14:56 á Íslandi!

Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launamun kynjanna voru meðalatvinnutekjur kvenna 74% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 26% lægri atvinnutekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir launum sínum eftir 5 klukkustundir og 56 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17.

Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:56.