Ert þú tilbúin til að taka virkan þátt í íslensku samfélagi? Þetta er yfirskrift átaks Kvennslóða: www.kvennaslodir.is, sem er gagnabanki með upplýsingum um kvensérfræðinga á ýmsum sviðum. Markmið vefsins er að gera þekkingu og hæfni kvenna sýnilega og aðgengilega, m.a. fyrir fjölmiðla, fyrirtæki og stjórnvöld. Á kvennaslóðum er hægt að finna nöfn kvenna sem tilbúnar eru til að leggja sitt af mörkum í samfélaginu, t.d. með því að veita sérfræðiálit í fjölmiðlum og sitja í stjórnum, ráðum og nefndum á vegum hins opinbera og í einkageiranum. Við hvetjum allar konur sem vilja taka virkan þátt í íslensku samfélagi að skrá sig við fyrsta tækifæri.