Kynjaþingi 2021, sem átti að vera í Veröld á morgun, laugardaginn 13. nóvember, hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar.

Boðað verður til Kynjaþings strax og öruggt er að halda fjöldasamkomur.

Fjölbreytt samtök og hópar sem vinna að kynjajafnrétti voru með viðburði á dagskrá þingsins: ASÍ, Áfallasaga kvenna, EMPOWER, Femínísk fjármál, Kvennasögusafn Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Rótin, RVK Feminist Film Festival, Samtök um kvennaathvarf, Samtökin ’78, Sigrún hannyrðapönkari, Slagtog, Stígamót og W.O.M.E.N. in Iceland – Samtök kvenna af erlendum uppruna.

Njótið helgarinnar, öll sömul. Við hlökkum til þegar við loksins getum haldið Kynjaþing með öruggum hætti, þar sem við skálum yfir áföngum sem við höfum náð til að tryggja kvenréttindi og skipuleggjum saman femíníska framtíð!