Menningar- og minningarsjóður kvenna auglýsir eftir styrkumsóknum vegna ársins 2012

Auglýst er eftir umsóknum vegna ársins 2012. Að þessu sinni er sjóðurinn opinn fyrir umsóknum frá einstæðum mæðrum sem ætla að hefja háskólanám á árinu og er styrkurinn ætlaður til greiðslu innritunargjalds/skólagjalda.

Styrkupphæð árið 2011 eru 300 þúsund og áskilur stjórn sjóðsins sér rétt til að ákveða fjölda styrkþega. Styrkur verður greiddur út þegar staðfesting á skólavist liggur fyrir.

Með umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn:

*Staðfesting um skólavist.
*Skattaskýrsla vegna tekna árið 2011
*Upplýsingar um aðra styrki vegna námsins ef um þá er að ræða

*Tekjuáætlun ársins 2012

Umsóknareyðublöð má nálgast hér á heimasíðunni.

Í umsókn skulu koma fram helstu upplýsingar um umsækjanda og aðstæður hans og fjölskylduhagi, hvaða skóla sótt er um og hvaða nám umsækjandi stundar eða hyggst stunda.

Umsóknarfrestur er til 25. maí nk. Umsóknum skal skilað til Menningar- og minningarsjóðs kvenna, Hallveigarstöðum við Túngötu 14, 101 Reykjavík. Tilkynnt verður um styrkþega á kvenréttindadaginn 19. júní. Allar nánari  upplýsingar á skrifstofu KRFÍ og á netfanginu krfi [@] krfi.is.