Tatjana Latinovic formaður Kvenréttindafélags Íslands og Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir framkvæmdastýra hafa skrifað eftirfarandi grein:


Í haust birtust nýjar tölur frá Hagstofu Íslands þar sem fram kemur að launamunur kynjanna heldur áfram að minnka hér á Íslandi. Munurinn á heildarlaunum kvenna og karla er nú 22,8% og hefur minnkað töluvert frá árinu á undan þegar samsvarandi munur var 24,9%. Það er að sjálfsögðu ánægjulegt að við á Íslandi séum smám saman að uppræta kynbundið kjaramisrétti. En þetta er einnig skelfileg staðreynd, að við búum í samfélagi þar sem helmingur þjóðarinnar býr enn við landlægt og rótgróið misrétti.

Kynbundin skipting vinnumarkaðar skýrir að miklu leyti launamun sem enn er til staðar og okkur mun ekki takast að uppræta hann fyrr en sátt næst um mikilvægi svokallaða „kvennastarfa“. Við búum enn í samfélagi þar sem störf kvenna eru minna metin en störf karla, þar sem framlag kvenna til samfélagsins er enn talið minna virði en framlag karla.

Heimsfaraldur COVID-19 hefur dregið fram mikilvægi umönnunar, fræðslu og þjónustu, starfsgreina þar sem konur eru í miklum meirihluta. Þegar litið er á dreifingu launa eftir starfsgreinum kemur í ljós að þessi störf eru minna metin til launa en önnur, svo framleiðsla eða byggingarstarfsemi. Við sem samfélag þurfum að meta heildstætt virði ólíkra starfa og greiða sambærileg laun fyrir jafnverðmæt störf.

Kvenréttindafélag Íslands styður heilshugar við áætlanir til að leiðrétta skakkt verðmætamat samfélagsins sem lagðar voru fram í haust í skýrslu forsætisráðherra. Til þess að leiðrétta þessa skekkju þurfum við ekki aðeins verkfæri og verkferla, heldur samstilltan vilja og kraft.

Konur hafa gengið úr vinnu sex sinnum síðustu hálfa öldina til að mótmæla landlægu kjaramisrétti kynjanna hér á landi, á kvennafrídegi 1975, 1985, 2005, 2010, 2016 og 2018. Kvenréttindafélag Íslands minnir á kröfur kvenna sem lesnar voru upp á baráttufundi á Arnarhóli þann 24. október 2018:

Jafnréttismál eru hagsmunir okkar allra, ekki bara kvenna. Breytum menningunni og hugarfarinu, saman! Stöndum saman og höfum hátt! Breytum ekki konum, breytum samfélaginu! Kjarajafnrétti STRAX!

Greinin birtist einnig á Vísi.is 24. október 2021