„Minna hot í ár“. Málþing um stjórnmálaumræðu 2018

Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands (RIKK) og Kvenréttindafélag Íslands standa fyrir málþingi um kvenfyrirlitningu, þöggun og tvískinnung í íslenskri stjórnmálaorðræðu. Þar verður m.a. fjallað um hæfni feðraveldsins til þess að laga sig að nýjum tímum, birtingarmyndir kynjafordóma, fötlunarfyrirlitningu og hatursorðræðu stjórnmálamanna. Spurt verður hvort ferðraveldið sé að bregðast við #metoo-byltingunni og hvort enn sé litið á konur sem aðskotahlut í stjórnmálum.

Dagskráin fer fram í Veröld, Húsi Vigdísar, miðvikudaginn 5. desember frá klukkan 11.30-13.15.

Málþingið hefst með röð fræðilegra ör-erinda. Að þeim loknum munu stjórnmálamenn fjalla um ofangreint ástand í pallborði.

Frummælendur verða fræðimennirnir: Irma Erlingsdóttir dósent og forstöðumaður, Ragnheiður Kristjánsdóttir dósent í sagnfræði, Erla Hulda Halldórsdóttir dósent í kvenna- og kynjasögu, Ragnhildur Helgadóttir forseti lagadeild Háskólans í Reykjavík, Stefanía Óskarsdóttir dósent í stjórnmálafræði, Henry Alexander Henrysson aðjunkt við heimspeki- og sagnfræðideild, Silja Bára Ómarsdóttir dósent í alþjóðasamskiptum, Þorgerður Þorvaldsdóttir doktor í kynjafræði, Eyja Margrét Brynjarsdóttir aðjunkt í heimspeki, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sagnfræðingur, og Dagný Kristjánsdóttir deildarforseti í íslensku- og menningardeild.

Í pallborðsumræðum taka þátt: Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Þorsteinn Víglundsson alþingmaður og fyrrverandi jafnréttisráðherra, Helga Vala Helgadóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Halldóra Mogensen formaður velferðarnefndar Alþingis, Silja Dögg Gunnarsdóttir alþingismaður og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar og baráttukona fyrir réttindum fatlaðs fólks.

Annadís Gréta Rúdólfsdóttir stýrir pallborðsumræðum og fundarstjóri er Tatjana Latinovic varaformaður Kvenréttindafélags Íslands.

Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Athugið, málþinginu er einnig streymt í beinni útsendingu á Facebook-síðu RIKK: https://www.facebook.com/rikk.haskoliislands.