Reykjavík hefur komið á laggirnar þjónustu fyrir innflytjendur sem verður í boði hjá Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21 í Reykjavík. Þjónustan er ætluð þeim borgurum af erlendum uppruna sem hafa lögheimili í Reykjavík og felst í almennri ráðgjöf ásamt lögfræðiráðgjöf.

Barbara J. Kristvinsson ráðgjafi og Margrét Steinarsdóttir lögfræðingur eru starfsmenn þjónustunnar. Barbara tekur á móti fólki á milli 8:30-16:00 á virkum dögum. Fólk sem þarf túlka þarf að panta tíma með fyrirvara. Til að fá tíma hjá Margréti hafið samband við Barböru. Nánar hjá barbara.jean.kristvinsson[hjá]reykjavik.is eða í síma 411-1600.