Ný vefgátt um jafnréttismál á Íslandi – á ensku

resources_krfibanner_red_mjallhvit-is_web

Kvenréttindafélag Íslands hefur opnað vefgátt á heimasíðu sinni þar sem erlendir gestir og blaðamenn geta nálgast upplýsingar um stöðu kvenna á Íslandi og jafnrétti kynjanna. Á þessari síðu er að finna lýsingar á og krækjur í greinar og skýrslur um stöðu kvenna og jafnrétti kynjanna á Íslandi sem skrifaðar hafa verið á ensku.

Vefgáttina er að finna hér: https://kvenrettindafelag.is/useful-resources.

Félagið vonar að þessi síða eigi eftir að nýtast vel á komandi árum. Sífellt fleiri erlendir aðilar sýna íslensku starfi í jafnréttismálum áhuga, enda hefur Ísland verið í leiðandi stöðu í mörg ár hvað varðar jafnrétti kynjanna.

Vefgáttin er unnin af Lindu Giozza sem í haust hefur verið starfsnemi hjá Kvenréttindafélaginu. Linda er meistaranemi í þróunarfræði og alþjóðasamskiptum hjá Aalborg Háskólanum í Danmörku og er starf hennar styrkt af evrópska Erasmus+ styrktarsjóðnum.