Nýr gjaldkeri IAW

Á aðalþingi International Alliance of Women (IAW) sem haldið var í Suður-Afríku í nóvember sl. var Þorbjörg I. Jónsdóttir, fyrrum formaður KRFÍ, kjörin gjaldkeri samtakanna. Kosið er í embætti og stjórn til þriggja ára í senn.

KRFÍ óskar Þorbjörgu til hamingju með embættið.

International Aliance of Women eru alþjóðleg samtök kvenréttindafélaga og voru þau stofnuð í Berlín árið 1904. KRFÍ hefur verið aðili að samtökunum síðan 1911. Nánar má lesa um samtökin á slóðinni www.womenalliance.org.