Nýr heiðursfélagi

Sveinbjörg Hermannsdóttir var kjörin heiðursfélagi í Kvenréttindafélagi Íslands á framkvæmdastjórnarfundi 25. ágúst sl. Sveinbjörg, sem er fædd árið 1911, hefur verið félagi í KRFÍ í rúma hálfa öld og hefur sýnt félaginu mikla ræktarsemi. Á 99. aldursári sækir Sveinbjörg enn viðburði á vegum félagsins.  Á aðalstjórnarfundi KRFÍ 17. september sl. afhenti Margrét K. Sverrisdóttir, formaður KRFÍ, Sveinbjörgu heiðursskjal að þessu tilefni.

Viðtal við Sveinbjörgu birtist í 19. júní árið 2007.