Siðlegir starfshættir og ábyrgð stjórna almannaheillasamtaka

Opin hádegismálstofa á vegum Háskólans í Reykjavík og Almannaheilla, samtaka þriðja geirans, miðvikudaginn 7. apríl kl. 12.00-13.15. Allir eru velkomnir og fer málstofan fram í aðalbyggingu HR í Nauthólsvík, Fönix 3.

Dagskrá:

ÁVARP: Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra.

SIÐLEGIR STARFSHÆTTIR OG SETNING SIÐAREGLNA: Stefán Einar Stefánsson, siðfræðingur við lagadeild HR fjallar um hvað felst í siðlegum starfsháttum og hvaða kröfur er eðlilegt að gerðar séu og hverju þær skipta.

ÁBYRGÐ STJÓRNENDA OG STJÓRNARMANNA Í ALMANNAHEILLASAMTÖKUM: Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs HR, fjallar um þá ábyrgð sem hvílir á stjórnarmönnum og stjórnendum almannaheillasamtaka.

DRÖG AÐ SIÐAREGLUM ALMANNAHEILLA KYNNT, FYRIRSPURNIR OG UMRÆÐUR.

Fundarstjóri er Guðrún Agnarsdóttir, formaður Almannaheilla.

Skráning á www.hr.is