Kvenréttindafélag Íslands hefur ásamt Mannréttindaskrifstofu Íslands, Barnaheill, Landssamtökin Þroskahjálp og Siðmennt skilað inn skuggaskýrslu til Sameinuðu þjóðanna um framkvæmd stjórnmála á mannréttindamálum á Íslandi.

Þessi skuggaskýrsla var skrifuð sem hluti af reglubundnu eftirliti Sameinuðu þjóðanna um mannréttindamál (Universal Periodic Review – UPR), en ríki heims gangast undir þetta eftirlit á fjögurra ára fresti.

Ísland verður tekið fyrir á þessum eftirlitsfundi í janúar 2022, og er þessari skuggaskýrslu ætlað að gefa nefndinni óháð mat frjálsra félagasamtaka á framkvæmd stjórnvalda í mannréttindamálum hér á landi.

Hægt er að lesa skýrsluna hér.