Velkomin í femíníska sögugöngu og gleðistund á kvenréttindadegi 19. júní.

Mæting í gönguna er fyrir framan Kvennaheimilið Hallveigarstaði á Túngötu 14 og lagt er af stað kl. 17:00.

Tinna Eik Rakelardóttir, stofnandi Reykjavík Feminist Walking Tour, leiðir gesti í fótspor kvenna í miðborg Reykjavíkur og segir byltingarsögu borgarinnar. Gangan fjallar um ýmsa einstaklinga og hópa sem hafa haft söguleg áhrif á réttindabaráttu á Íslandi en sem oft gleymist að nefna í hefðbundnu sögulegu samhengi. Aðaláhersla er lögð á réttindabaráttu kvenna en einnig verður komið inn á atriði sem varða réttindabaráttu fatlaðra, hinsegin fólks, innflytjenda og fátækra og þá í feminísku samhengi.

Gangan er aðgengileg hjólastólum, en á einstaka umferðarljósi er 3 sm misfella. Til að athuga með frekara aðgengi má endilega hafa samband við Tinnu á info@rvkfeministwalk.is.

Gangan endar klukkan 18:00 við Skúla Craft Bar þar sem Kvenréttindafélag Íslands og Lady Brewery bjóða upp í Happy Hour.

Skúli Craft Bar býður upp á ískalda First Lady og hina geysivinsælu Gunnu Ö sem brugguð var til heiðurs baráttukonunni Guðrúnu Ögmundsdóttur.