Stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur 15. apríl 2010

Þú siglir alltaf til sama lands

Hátíðardagskrá í Háskólabíói 15. apríl kl. 16:30–18:00

Dagskráin er öllum opin. Húsið verður opnað kl. 15:30 og eru gestir hvattir til að mæta stundvíslega þar sem sent verður beint út í sjónvarpi og útvarpi.

Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands, setur dagskrána kl. 16:30 og í kjölfarið munu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri  ávarpa afmælisbarnið. Háskóli Íslands, stjórnvöld og Reykjavíkurborg  standa að afmælishátíðinni.

Þá tekur við dagskrá í myndum, tali og tónum undir listrænni stjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur. Dagskráin er afmælisgjöf til Vigdísar frá listamönnum og þeim samtökum sem Vigdís hefur unnið hvað mest með. Dagskránni lýkur laust fyrir kl. 18 með ávarpi afmælisbarnsins.

Heiðrum Vigdísi á þessum merkisdegi hennar með því að fjölmenna á afmælishátíðina.

 Nánari upplýsingar á vef Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur www.vigdis.hi.is  og hjá svanhvit [hjá] hi.is