Á afmælisdegi Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna afhenti Menningar og minningarsjóður kvenna sjö styrki til ólíkra verkefna í minningu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur baráttukonu fyrir réttindum kvenna. Styrkirnir voru afhentir við hátíðlega athöfn í sal Kvenréttindafélagi Íslands að Hallveigarstöðum, Túngötu 14.
Í ár lagði stjórn sjóðsins áherslu á sögu kvenna og kvenréttinda í tilefni af því að 50 ár verða liðin frá kvennaári Sameinuðu þjóðanna á næsta ári. Alls bárust 55 umsóknir í sjóðinn, en sjö umsóknir hlutu styrk:
- Helga Margrét Clarke fyrir viðburð Raddir kvenna – Tónlistararfleifð í gegnum aldirnar, 550.000 kr.
- Lovísa Fjeldsted vegna bókarinnar Jórunn Viðar: Brautryðjandi í íslenskri tónlist. Ævisaga og verkaskrá, 200.000 kr.
- Unnur Birna Karlsdóttir fyrir verkefnið Konur í verkalýðsbaráttu á Austurlandi á fyrri hluta 20. Aldar – þátttaka og áhrif, 500.000 kr.
- Flóra menningarhús – Sigurhæðir Akureyri fyrir verkefnið: Menningararfur Ólafar frá Hlöðum: Vinna við Bernskuheimilið mitt og viðburðahald, 500.000 kr.
- Kolbrún Finnsdóttir fyrir verkefnið: LILJUSPOR dagbókarskrif, minningar, skoðarnir, erindi og hugmyndir Lilju Sigurðardóttur (1884-1970) frá Víðivöllum í Blönduhlíð í Skagafirði, 200.000 kr.
- Iðunn Vignisdóttir fyrir ritun á sögu Kvennaskóla Húnvetninga, 500.000 kr.
- Marion Charlotte B. Poilvez, fyrir skrásetningu sögu Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, 500.000 kr.
Menningar og minningarsjóður kvenna var stofnaður af afkomendum Bríetar Bjarnhéðinsdóttur árið 1941 í minningu hennar. Sjóðurinn hefur í gegnum árin styrkt menntun kvenna og kvennamenningu með reglulegum úthlutunum. Stjórn sjóðsins minnir á að hægt er að styrkja sjóðinn með frjálsum framlögum og minnir á að einstaklingar geta fengið skattafrádrátt vegna gjafa og framlaga til félaga sem skráð eru á almannaheillaskrá Skattsins.
Stjórn Menningar og minningarsjóðs kvenna skipa Kristín Ástgeirsdóttir formaður, Helga Dögg Björgvinsdóttir, Lára Aðalsteinsdóttir, Sabine Leskopf og Tatjana Latinovic formaður Kvenréttindafélags Íslands.