KRFÍ stendur fyrir súpufundi á Hallveigarstöðum, fimmtudaginn 5. nóvember nk. kl. 12.00-13.00 undir yfirskriftinni:

Sýnileiki kvenna í fjölmiðlum á kosningaári

Stutt erindi flytja Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi og Svanhildur Kaaber, formaður stjórnar Ríkisútvarpsins. Umræður.

Súpa og brauð í boði KRFÍ. Allir velkomnir. Skráning á krfi[hjá]krfi.is


KRFÍ hefur gert stutta könnun á því af hvaða kyni viðmælendur tveggja vinsælla umræðuþátta hjá Ríkissjónvarpinu- og útvarpinu hafa verið undanfarna tvo mánuði. Um er að ræða þættina Silfur Egils í Sjónvarpinu og útvarpsþáttinn Vikulokin á Rás 1. Í ljós kom að konur eru þar í miklum minnihluta eða um 22-25% viðmlælenda.