Þriðjudaginn 27. nóvember verður haldinn súpufundur í samkomusal Hallveigarstaða kl. 12:00. Sýnd verður danska heimildarmyndin When the Moon is Dark eftir Önju Dalhoff. Myndin greinir frá tveimur nígerískum konum sem seldar eru mansali til Danmerkur. Fundurinn er haldinn í tilefni af 16 daga átakinu gegn kynbundnu ofbeldi. Súpa og brauð er í boði KRFÍ og Kvenfélagasambands Íslands. Allir velkomnir.
Kvenréttindafélag Íslands2007-11-26T17:55:10+00:00nóvember 26th, 2007|Almennar fréttir|Slökkt á athugasemdum við Súpufundur – bíó