Þjóðlegt eldhús 2. febrúar kl. 19

Verið velkomin í fyrsta Þjóðlega eldhús ársins á Hallveigarstöðum (Túngötu 14, í kjallara hússins) á morgun fimmtudaginn, 2. febrúar, kl. 19.00. Að þessu sinni verður matarmenning Indónesíu kynnt.

Allir eru velkomnir að vera með á matarkvöldunum. Vinsamlegast skráið þátttöku í tölvupósti á magdalena [hjá] womeniniceland.is.

800 kr. greiðast á staðnum og er í þeim innifalinn matur, kaffi og vatn. Gos og léttvín er hægt að kaupa gegn vægu verði.

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og Kvenréttindafélag Íslands bjóða upp á Þjóðlegt eldhús, þar sem við eldum saman góðan, framandi og freistandi mat frá mismunandi heimshornum. Kynnt verður ný matargerð, farið í notkun á framandi kryddjurtum og sagt frá matarmenningu ýmissa þjóða í skemmtilegum félagsskap. Konur úr samtökunum kynna landið sitt og menningu í gegnum mat, sögur og myndir. Við hvetjum allar til að taka virkan þátt bæði í undirbúningi réttana og tiltektinni eftir á:)

Verði ykkur að góðu!

indonesiaborobud