Á aðalfundi Kvenréttindafélags Íslands sem haldinn var að Hallveigarstöðum þann 17. apríl 2004 var samþykkt eftirfarandi áskorun.


Aðalfundur Kvenréttindafélags Íslands skorar á ríkisstjórn Íslands að virða þær skuldbindingar sem íslenska ríkið hefur gengist undir að þjóðarrétti, í stjórnarskrá og jafnréttislögum.  Það er krafa Kvenréttindafélagsins að ríkisstjórn og hver ráðherra hennar, geri allt sem í þeirra valdi stendur til að jafna hlut kynjanna í æðstu stjórnarstöðum þjóðarinnar án tafar og færi þjóðinni þar með þau gæði sem felast í jafnrétti.
Reykjavík, 20. apríl 2004