Umsögn um frumvarp til laga um lengingu fæðingarorlofs

Kvenréttindafélag Íslands hefur sent frá sér eftirfarandi umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum (lenging fæðingarorlofs), mál nr. 270/2019, félagsmálaráðuneyti.

12. nóvember 2019
Hallveigarstöðum, Reykjavík

Kvenréttindafélag Íslands fagnar framkomnu frumvarpi sem kveður á um lengingu fæðingarorlofs í tólf mánuði.

Kvenréttindafélag Íslands vill þó koma á framfæri þeirri skoðun sinni að réttindum á vinnumarkaði eigi ekki að deila með öðrum og telur því eðlilegt að hvort foreldri um sig eigi sex mánaða sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs.

Kvenréttindafélag Íslands vill einnig koma því á framfæri að nauðsynlegt sé að brúa bilið á milli þess þegar fæðingar- og foreldraoflofi lýkur og þegar daggæsla barna er tryggð. Jafnvel eftir lengingu fæðingar- og foreldraorlofs sem um ræðir í þessu frumvarpi, stendur eftir eitt ár sem foreldrar hafa ekki tryggða daggæslu, og 17 mánuðir fyrir einstæða foreldra.