19. febrúar 2016
Hallveigarstöðum, Reykjavík

Efni: Umsögn Kvenréttindafélags Íslands um breytingu á lögum um 40 stunda vinnuviku, nr. 88/1971, með síðari breytingum, 145. löggjafarþing 2015–2016. Þingskjal nr. 284 – 259. mál.

Kvenréttindafélagi Íslands hefur borist til umsagnar ofangreint frumvarp um breytingu á lögum um 40 stunda vinnuviku. Markmiðið með frumvarpinu er að fækka vinnustundum niður í 35 á viku. Í greinargerð er vísað í upplýsingar frá OECD þar sem í ljós kemur þrátt fyrir Íslendingar vinni langa vinnudaga, þá er framleiðni okkar undir meðaltali. Í greinargerðinni kemur fram að margt bendi til að styttri vinnudagar leiði til meiri framleiðni og aukinna lífsgæða.

Kvenréttindafélag Íslands styður efni frumvarpsins, og hvetur auk þess til þess að markvisst verði unnið að því að kortleggja hvernig stytting vinnuvikunnar geti nýst sem verkfæri til að útrýma launamun kynjanna á Íslandi.