Kvenréttindafélag Íslands hefur sent frá sér eftirfarandi umsögn um drög að frumvarpi til laga um tillögu til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál. 153. löggjafarþing 2022-2023, þskj. 126, 126. mál.

Hallveigarstaðir, Reykjavík
22. mars 2023

Kvenréttindafélag Íslands hvetur Alþingi til þess að samþykkja tillögu til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál.

Í tillögunni er dómsmálaráðherra falið að setja á fót starfshóp til að móta tillögur um bætt verklag um miðlun upplýsinga um heimilisofbeldismál á milli kerfa barnaverndaryfirvalda, félagsþjónustu sveitarfélaga, heilbrigðisstofnana, skóla og lögregluembætta, þ.á.m. tillögur um rýmri lagaheimildir til miðlunar upplýsinga um heimilisofbeldi milli stofnana, skóla og lögregluembætta auk þess að koma á fót samstarfsvettvangi stjórnvalda.

Heimilisofbeldi er rótgróinn vandi í íslensku samfélagi og er samstillt átak allra aðila nauðsynlegt til þess að uppræta vandamálið. Góð samskipti þeirra stofnana og aðila sem vinna að málaflokknum er grundvöllur þess að árangri verði náð.

Kvenréttindafélag Íslands hefur þrisvar áður sent inn umsögn um samhljóðandi þingsályktunartillögu, á 150., 151., og 152. löggjafarþingi, en hefur tillagan ekki enn hlotið framgang. Kvenréttindafélag Íslands hvetur 153. löggjafarþing íslensku þjóðarinnar eindregið til þess að samþykkja þessa tillögu til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál.