Kvenréttindafélag Ísland hefur sent frá sér eftirfarandi umsögn um tillögu til þingsályktunar upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál. 151. löggjafarþing 2020–2021. Þingskjal 86,  85. mál.


3. nóvember 2020
Hallveigarstaðir, Reykjavík

Kvenréttindafélag Íslands hvetur Alþingi til að samþykkja tillögu til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál.

Í tillögunni er dómsmálaráðherra falið að setja á fót starfshóp til að móta tillögur um bætt verklag um miðlun um heimilisofbeldismál á milli kerfa félagsþjónustu sveitarfélaga, heilbrigðisstofnana, skóla og lögregluembætta, þ.á.m. tillögur um rýmri lagaheimildir til miðlunar upplýsinga um heimilisofbeldi milli stofnana.

Heimilisofbeldi er rótgróinn vandi í íslensku samfélagi og við þurfum samstillt átak allra aðila til að uppræta þessa plágu. Góð samskipti milli þeirra stofnana og aðila sem vinna að málaflokknum er grundvöllur þess að við getum náð góðum árangri. Kvenréttindafélag Íslands hvetur því Alþingi til að samþykkja þessa tillögu til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál.