Miðvikudaginn 29. apríl kl. 16:30 – 18:30 verður haldinn fundur á Hallveigarstöðum til að minnast Sigurðar Jónassonar, þýðanda Kúgun kvenna eftir John Stuart Mill, og til að safna fyrir minnisvarða um þennan unga mann sem lést langt fyrir aldur fram.

***

Sigurður Jónasson frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal (1863-1887)

Sigurður Jónasson frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal (1863-1887)

Sigurður Jónasson frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal íslenskaði bókina „On the Subjection of Women“ eftir enska heimspekinginn John Stuart Mill.  Hún kom fyrst út árið 1869 og er grundvallarrit í vestrænni kvennabaráttu.  Ritið fékk heitið „Kúgun kvenna“ á íslensku. Hið íslenska kvenfélag gekkst fyrir útgáfu ritsins árið 1900.  Löngu seinna var ritið, að frumkvæði nemenda og kennara í kvennafélagsfræði við Háskóla Íslands, gefið út á ný árin 1997 og 2003 hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi.

Sigurður lést á 24. aldursári, drukknaði af skipi er hann var á leið í framhaldsnám í Kaupmannahöfn.  Hann var öllum harmdauði. Þýðingarafrek hins unga manns er enn í minnum haft. Ættmenni hans vinna að því að reisa minningarstöpul á Blönduósi. Afhjúpun er ráðgerð 7. ágúst nk. Fjármögnun til að kosta gerð og frágang stöpulsins fer nú fram.

Fjölskyldan á Eyjólfsstöðum var ekki stór. Að Sigurði látnum voru þar, auk foreldra hans, hjónanna Jónasar Guðmundssonar  Ólafssonar á Kirkjubæ í Norðurárdal í Austur-Húnavatnssýslu og Steinunnar Steinsdóttur frá Eyjólfsstöðum, dóttir þeirra Margrét Oddný og tveir uppeldissynir, Magnús Jónsson, síðar bókbindari, og Sigurður Nordal, síðar prófessor.  Sigurður Nordal, sem fæddist á Eyjólfsstöðum, var bróðursonur Jónasar Guðmundssonar og ólst upp hjá þeim Steinunni.

Fjármögnun til að kosta gerð og frágang minnismerkisins um Sigurð Jónasson og Kúgun kvenna fer nú fram. Þeir sem vilja og treysta sér til að leggjast á sveif eru góðfúslega beðnir að leggja inn á bankareikning sem hér segir:  Bankareikningur og kennitala:   515-14-121857 (Íslandsbanki); Kt. 051036-3449 (Heiti reiknings: „Kúgun kvenna“).

* * *

D A G S K R Á

Fundarstjóri: Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélagsins

  1. Steinunn Stefánsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands, flytur kveðju frá Kvenréttindafélaginu.
  2. Dr. Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands og kennari við sagnfræði- og heimspekideild Háskólans:  Hugleiðing um Kúgun kvenna.
  3. Þór Jakobsson: Sigurður Jónasson frá Eyjólfsstöðum. Minningarstöpull á Blönduósi.
  4. Upplestur.  Þór, ásamt nokkrum afkomenda Margrétar Oddnýjar Jónasdóttur:
    1. Stuttur kafli úr „Kúgun kvenna“.
    2. Lauslega sagt frá dagbókum Jónasar Guðmundssonar bónda á Eyjólfsstöðum.
    3. Lesið úr Kaupmannahafnarbréfi Sigurðar til vinar heima í Vatnsdal.
    4. Lesið úr Minningum Sigurðar Briem: Félagaþjark í Kaupmannahöfn 1884.
    5. Flutt ljóðið „Draumur“ eftir Einar Benediktsson, skólabróður Sigurðar.
    6. Lesið úr minningarorðum Sigurðar Nordals um fóstru hans, Steinunni Steinsdóttur á Eyjólfsstöðum.
  5. Auður Styrkársdóttir, forstöðukona Kvennasögusafns Íslands: Ávarp í fundarlok.