Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna bjóða ASÍ, BHM, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Kennarasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands til hádegisfundar á Hilton Reykjavík Nordica þann 8. mars kl. 12–13:15. Yfirskrift fundarins er “Er vinnumarkaðurinn vaknaður? #Metoo og lægri þröskuldur”. Fundinum mun einnig vera deilt í streymi á samfélagsmiðlum og upptaka verður aðgengileg að fundi loknum.

Viðburðurinn fer fram í sal I á Hilton Reykjavík Nordica þar sem boðið verður uppá að kaupa grænmetissúpu og kaffi á 3500kr.

Þátttakendur í pallborðsumræðunum verða kynntir von bráðar, en Sonja Ýr Þorbergsdóttir mun vera fundarstýra og leiða umræður.

Hægt er einnig að sjá facebook viðburðinn þar sem frekari upplýsingar munu birtast.