Viðurkenning KRFÍ

Sölvi Tryggvason, dagskrárgerðarmaður hlaut viðurkenningu Kvenréttindafélags Íslands í síðustu viku fyrir jöfn kynjahlutföll viðmælenda í spjallþáttunum „Spjallið með Sölva“ á Skjá 1. Það var Margrét K. Sverrisdóttir sem afhenti Sölva viðurkenningarskjalið og var greint frá því í fréttatíma stöðvarinnar: http://skjarinn.is/einn/veftivi/frettir/1106/#tab=islenskir-thaettir


Á súpufundi KRFÍ í byrjun nóvember voru kynntar tvær óformlegar kannanir á sýnileika kvenna í viðtalsþáttum í sjónvarpi og útvarpi. Þar kom í ljós að Sölvi getur það sem þáttastjórnendur á ríkisfjölmiðlum geta ekki; að hafa jafnt kynjahlutfall meðal viðmælenda í þáttum sínum.

Þeir þættir sem voru athugaðir voru Silfur Egils, Kastljós og Spjallið með Sölva, ásamt útvarpsþættinum Vikulokin á Rás 1.

Það var Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi sem gerði úttektina á þáttum Sölva, ásamt Kastljósinu og Silfri Egils. KRFÍ athugaði einnug Silfur Egils ásamt Vikulokunum.