Nýr forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss, Hulda Gunnlaugsdóttir, tók við störfum í 21. október sl. og af því tilefni færðu fulltrúar KRFÍ henni blómvönd í viðurkenningarskyni. Félagið hefur haft þann háttinn á undanfarin ár að vekja athygli landsmanna á því þegar kona velst til starfa á sviðum þar sem karlar hafa eingöngu gegnt forystu áður. Einnig þykir KRFÍ mikilvægt að börn og ungmenni hafi fyrirmyndir af báðum kynjum í valda- og stjórnunarstöðum.