Hjartanlega velkomin á árlegan jólafund Kvenréttindafélags Íslands og Kvennasögusafns Íslands, í Þjóðarbókhlöðunni laugardaginn 5. desember kl. 13-15.
Í ár verður jólafundurinn með öðru sniði en vanalega og dagskrá veglegri. Í ár fagnar Kvennasögusafnið 40 ára afmæli sínu, en safnið var stofnað af Önnu Sigurðardóttur sem var öflug í starfi Kvenréttindafélagsins til margra ára. Á 7. áratugnum hvatti Anna ungar stúlkur til að stofna félagsskap ungra kvenna, Úurnar, en þær létu til sín taka í jafnréttisumræðunni undir lok 7. áratugarins og við upphaf hins áttunda.
Á fundinum heldur Þórunn María Örnólfsdóttir sagnfræðingur fyrirlestur um ævi og kvenréttindastörf Önnu, Úurnar Ásdís Skúladóttir leikstjóri, Gullveig Sæmundsdóttir blaðamaður og Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur rifja upp störf sín, og Svava Bernharðsdóttir og Kristín Valsdóttir leika á hljóðfæri.
Sjáumst öll á laugardaginn!
Dagskrá
1. Svava Bernharðsdóttir víóluleikari og Kristín Valsdóttir harmonikulleikari leika á hljóðfæri í upphafi til hliðar við breiðan inngang inn í salinn
2. Auður Styrkársdóttir forstöðumaður Kvennasögusafns Íslands setur dagskrá
3. Þórunn María Örnólfsdóttir sagnfræðingur segir frá ævi Önnu Sigurðardóttur og veltir fyrir sér hvað mótaði hana sem kvenréttindakonu
4. Ásdís Skúladóttir leikstjóri, Gullveig Sæmundsdóttir blaðamaður og Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur segja frá Úunum
5. Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands slítur fundi