Kvenréttindafélag Íslands mun standa fyrir glæsilegri afmælishátíð á 100 ára afmælisdaginn þ. 27. janúar nk. Hátíðin, sem haldin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur, hefst kl. 14:00 og stendur til kl. 17:00.


Margt mætra gesta mun flytja erindi á hátíðinni og mun Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra flytja heiðursávarp. Dagskráin lítur annars út á eftirfarandi hátt:

Ráðstefna KRFÍ í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur 27. janúar 2007 100 ára afmæli Kvenréttindafélags Íslands
Fundarstjóri:  Valgerður H. Bjarnadóttir

  • Kl. 14:00    Tónlistaratriði:  Stúlknakór Kársnesskóla
  • Kl. 14:15    Setning ráðstefnunnar:  Þorbjörg Inga Jónsdóttir formaður Kvenréttindafélags Íslands
  • Kl. 14:25    Heiðursávarp:  Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
  • Kl. 14:35    Erindi:  Formaður Kvenréttindafélagsins 1977 Sólveig Ólafsdóttir
  • Kl. 14:45    Erindi:  KRFÍ og Mæðrastyrksnefnd Ragnhildur G. Guðmundsdóttir
  • Kl. 14:55    Erindi:  Formaður Kvenréttindafélagsins 1987. Lára V. Júlíusdóttir
  • Kl. 15:05    Erindi:  Leshópur KRFÍ Björg Einarsdóttir
  • Kl. 15:15    Erindi:  Formaður Kvenréttindafélagsins 1997 Sigríður Lillý Baldursdóttir
  • Kl. 15:25    Erindi: Menningar- og minningarsjóður kvenna Kristín Þóra Harðardóttir
  • Kl. 15:40    Tónlistaratriði:  Ásgerður Júníusdóttir
  • Kl. 15:50    Erindi:  19. júní   Rósa Björk Brynjólfsdóttir
  • Kl. 16:00    Erindi:  Alþjóðlegt samstarf Þorbjörg Inga Jónsdóttir
  • Kl. 16:10   Erindi:  Framtíðarsýn Eva María Jónsdóttir
  • Kl. 16:20    Ráðstefnuslit Kl. 16:45

Móttaka í boði Reykjavíkurborgar
Styrktaraðilar: Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Sjávarútvegsráðuneytið, Fjármálaráðuneytið, Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Samgönguráðuneytið, Félagsmálaráðuneytið, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Reykjavíkurborg.