Aðalfundur Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi verður haldinn fimmtudaginn, 13. nóvember nk. 19:00 í samkomusal Hallveigarstaða við Túngötu 14, 101 Reykjavík.
Allar konur af erlendum uppruna er hvattar til að mæta á fundinn.
Þær sem vilja bjóða sig fram í stjórn Samtakanna þurfa að senda eftirfarandi upplýsingar um sig á netfangið womeniniceland@womeniniceland.is:

  • nafn
  • heimilisfang
  • netfang
  • símanúmer
  • lýsingu á reynslu og því sem þið viljið ná fram fyrir Samtök kvenna af erlendum uppruna

Sendist fyrir 10. nóvember nk.