Jafnréttisstofa hefur gefið út bæklinginn Women and Men in Iceland 2008, í samvinnu við Hagstofu Íslands og félags- og tryggingamálaráðuneytið. Um er að ræða samantekt á helstu tölum um hlutfall kynjanna í ýmsum málaflokkum. Í bæklingnum er m.a. að finna upplýsingarum stöðu kynjanna á atvinnumarkaðnum, í menntakerfinu og í áhrifastöðum. Bæklingurinn er á ensku og er m.a. ætlaður til að kynna stöðu jafnréttismála á Íslandi erlendis. Hægt er að lesa bæklinginn hér.
Kvenréttindafélag Íslands2021-11-25T15:11:16+00:00mars 17th, 2008|Almennar fréttir|Slökkt á athugasemdum við Staða kynjanna árið 2008