Femínistahitt 3. nóvember

Femínistafélag Íslands heldur sitt mánaðarlega Femínistahitt þriðjudaginn 3. nóvember kl. 20 í Gallerý Horninu í Hafnarstræti í Reykjavík. Umræðuefnið að þessu sinni er mansal. Til þess að ræða stöðu þessa málaflokks á Íslandi verða Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra og Fríða Rós Valdimarsdóttir höfundur skýrslunnar “Líka á Íslandi – rannsókn á eðli og umfangi mansals” . Allir velkomnir.