(Al)þjóðlegt eldhús

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og Kvenréttindafélagi Íslands er það sönn ánægja að bjóða ykkur á fyrsta kvöldið undir yfirskriftinni

“þjóðlegt eldhús”

Eldaður verður saman góður, framandi og freistandi matur frá mismunandi heimshornum. Kynnt verður ný matargerð, farið í notkun á framandi kryddjurtum og sagt frá matarmenningu ýmissa þjóða í skemmtilegum félagsskap. Konur úr samtökunum kynna landið sitt og menningu í gegnum mat, sögur og myndir.

Vinsamlegast skráið þátttöku með tölvupósti á maria [hjá] womeniniceland.is

Dagsetning: 25. febrúar kl 19:30
Staður: Hallveigarstaðir við Túngötu 14, 101 Reykjavík
Þátttökugjald er 800 kr. og greiðist á staðnum. Matur og kaffi eru innifalin en hægt er að kaupa vín á staðnum á vægi verði.

Á þessu fyrsta matarkvöldi verður eldaður matur frá Kolumbíu. Næsta kvöld verður haldið fimttudaginn 25. mars nk.