Menningar- og minningarsjóður kvenna auglýsir eftir styrkumsóknum vegna ársins 2010. Að þessu sinni er sjóðurinn opinn fyrir umsóknum frá konum sem eru í, eða hyggja á nám á háskólastigi í listgreinum á komandi skólaári. Um getur verið að ræða nám hérlendis eða erlendis.

Styrkupphæð árið 2010 er ein milljón króna og áskilur stjórn sjóðsins sér rétt til að ákveða fjölda styrkþega. Styrkur verður greiddur út þegar staðfesting á skólavist liggur fyrir.

Með umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn:

*Staðfesting um skólavist og námsframvindu ef nám er hafið.
*Skattaskýrsla vegna tekna árið 2009
*Upplýsingar um aðra styrki vegna námsins ef um þá er að ræða

Umsóknareyðublöð má nálgast hér á heimasíðunni. Í umsókn skulu koma fram helstu upplýsingar um umsækjanda og aðstæður hans, hvaða skóla sótt er um og hvaða nám umsækjandi stundar eða hyggst stunda.

Umsóknarfrestur er til 25. maí nk. Tilkynnt verður um styrkþega á kvenréttindadaginn 19. júní. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu KRFÍ og á netfanginu krfi [hjá] krfi.is

Umsóknareyðublað MMK 2010