Kvenréttindafélag Íslands mun standa fyrir glæsilegri afmælishátíð á 100 ára afmælisdaginn þ. 27. janúar nk. Hátíðin, sem haldin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur, hefst kl. 14:00 og stendur til kl. 17:00.
Margt mætra gesta mun flytja erindi á hátíðinni og mun Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra flytja heiðursávarp. Dagskráin lítur annars út á eftirfarandi hátt:
Ráðstefna KRFÍ í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur 27. janúar 2007 100 ára afmæli Kvenréttindafélags Íslands
Fundarstjóri: Valgerður H. Bjarnadóttir
- Kl. 14:00 Tónlistaratriði: Stúlknakór Kársnesskóla
- Kl. 14:15 Setning ráðstefnunnar: Þorbjörg Inga Jónsdóttir formaður Kvenréttindafélags Íslands
- Kl. 14:25 Heiðursávarp: Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
- Kl. 14:35 Erindi: Formaður Kvenréttindafélagsins 1977 Sólveig Ólafsdóttir
- Kl. 14:45 Erindi: KRFÍ og Mæðrastyrksnefnd Ragnhildur G. Guðmundsdóttir
- Kl. 14:55 Erindi: Formaður Kvenréttindafélagsins 1987. Lára V. Júlíusdóttir
- Kl. 15:05 Erindi: Leshópur KRFÍ Björg Einarsdóttir
- Kl. 15:15 Erindi: Formaður Kvenréttindafélagsins 1997 Sigríður Lillý Baldursdóttir
- Kl. 15:25 Erindi: Menningar- og minningarsjóður kvenna Kristín Þóra Harðardóttir
- Kl. 15:40 Tónlistaratriði: Ásgerður Júníusdóttir
- Kl. 15:50 Erindi: 19. júní Rósa Björk Brynjólfsdóttir
- Kl. 16:00 Erindi: Alþjóðlegt samstarf Þorbjörg Inga Jónsdóttir
- Kl. 16:10 Erindi: Framtíðarsýn Eva María Jónsdóttir
- Kl. 16:20 Ráðstefnuslit Kl. 16:45
Móttaka í boði Reykjavíkurborgar
Styrktaraðilar: Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Sjávarútvegsráðuneytið, Fjármálaráðuneytið, Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Samgönguráðuneytið, Félagsmálaráðuneytið, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Reykjavíkurborg.