Að venju halda íslenskar konur upp á 19. júní hátíðlegan. Í ár eru liðin 87 ár frá því konur öðluðust kosningarétt og kjörgengi á við karla. Hátíðarhöld á vegum KRFÍ verða hefðbundin og verður dagskráin eftirfarandi:
Kl.
- 16:15 Kvennasöguganga undir leiðsögn Kristínar Ástgeirsdóttur, sagnfræðings. Gangan hefst við Kvennaskólann í Reykjavík. Gengið verður um Þingholtin, Kvosina og endar við Hallveigarstaði v/Túngötu.
- 17:15 Móttaka Kvenréttindafélags Íslands, Kvenfélagasambands Íslands og Bandalags kvenna í Reykjavík í samkomusal Hallveigarstaða, kjallara. Erindi flytja:
- Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður KRFÍ
- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra
- Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri 19. júní
- 18:00 Veitingar og kaffispjall.
Komið og fagnið deginum með okkur. Allir velkomnir