Sveitarstjórnir sinna allskyns verkefnum fyrir allskyns fólk. Það er því brýnt að framboð til sveitarstjórna endurspegli fjölbreytileika mannlífsins.

Í Byggðaáætlun stjórnvalda er tekið fram að mikilvægt sé að viðhalda jöfnu kynjahlutfalli í sveitarstjórnum landsins og hvetja fjölbreyttan hóp til þátttöku í sveitarstjórnarmálum. Var því farið af stað í #JÁTAK sem er jafnréttisátak í fjölbreytni.

Við vonum að með samstillu Játaki megi auka fjölbreytni í framboði til sveitarstjórna. Við þurfum á því að halda að sem flest kyn á fjölbreyttum aldri og með allskyns uppruna sameinist um að móta samfélag okkar.

Játak er framtak Jafnréttisstofu og forsætisráðuneytisins í samstarfi við Kvenréttindafélag Íslands, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Fjölmenningarsetur og Samband íslenskra sveitarfélaga.