Velkomin í 116 ára afmæli Kvenréttindafélags Íslands í Iðnó, föstudaginn 27. janúar 2023 kl. 12:00.
Kvenréttindafélagið heiðrar þrjár félagskonur fyrir framlag sitt til kvenréttinda og femínískrar baráttu á Íslandi og á heimsvísu:
- Esther Guðmundsdóttur fyrir áratuga störf fyrir Kvenréttindafélagið og femínísku hreyfinguna.
- Kristínu Ástgeirsdóttur fyrir áratuga störf fyrir femínísku hreyfinguna og rannsóknir á sögu kvenna á Íslandi.
- Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að brjóta glerþakið fyrir konur og hinsegin fólk í stjórnmálum á Íslandi og heimsvísu.
Boðið er upp á léttar veitingar. Aðgengi fyrir hjólastóla. Öll velkomin.
Hægt er að sjá facebook viðburð hér.