Þriðjudaginn 22. janúar verður haldið bókmenntakvöld í samkomusal Hallveigarstaða við Túngötu, kl. 20:00.
Dagskrá:
- Helga Kress, prófessor í bókmenntafræði við Háskóla Íslands, flytur erindi um kvenréttindaljóð Ólafar Sigurðardóttur frá Hlöðum
- Brynja Baldursdóttir, íslenskukennari í FG, flytur erindi um verk Þórunnar Elfu Magnúsdóttur
- Vigdís Grímsdóttir les úr verkum sínum.
Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Enginn aðgangseyrir