
Kvenréttindafélag Íslands boðar hér með til aðalfundar þriðjudaginn 15. apríl 2025 kl. 16:30-18:30 í Norræna húsinu. Aðgengi er fyrir öll á fundarstaðnum.
Tillögur og ályktanir skulu berast á netfang krfi@krfi.is, í síðasta lagi 7. apríl.
Sjá fyrir neðan upplýsingar um skráningu á aðalfund og framboð til trúnaðarstarfa.
Fundarstaður og skráning
Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu og rafrænt. Öll sem hafa áhuga til að sitja aðalfund eru beðin að skrá sig.
Rafrænn kjörseðill og krækja í rafrænt fundarherbergi eru send öllum skráðum þátttakendum morguninn 15. apríl.
Kallað er eftir framboðum
Allir skuldlausir félagar hafa kjörgengi og atkvæðisrétt á fundinum en kröfur fyrir félagsgjöldum 2025–2026 hafa verið sendar skráðum félögum.
Á fundinum er kosið um:
- þrjá fulltrúa í stjórn Kvenréttindafélags Íslands til tveggja ára
- formann Kvenréttindafélags Íslands til tveggja ára
- þrjá varamenn í stjórn Kvenréttindafélags Íslands til eins árs
- tvo skoðunarmenn reikninga Kvenréttindafélags Íslands
- fimm stjórnarmenn og fimm varamenn í stjórn Menningar- og minningarsjóðs kvenna
- einn fulltrúa Kvenréttindafélagsins í Almannaheillum
- tvo fulltrúa á aðalfund European Women’s Lobby – EWL
Tilkynna þarf framboð fyrir 7. apríl 2024 í gegnum skráningarformið
Dagskrá aðalfundar
- Setning aðalfundar
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Lögmæti fundarins staðfest
- Skýrslur stjórna KRFÍ og MMK lagðar fram
- Endurskoðaðir reikningar KRFÍ og MMK lagðir fram til samþykktar
- Ákvörðun tekin um upphæð félagsgjalds
- Tillögur um framkomnar lagabreytingar (stjórn leggur fram tillögu um stofnun ungmennaráðs og lagabreytingatillögur má sjá hér:
- Kosning stjórnar (athugið að verði lagabreytingar um stofnun ungmennaráðs samþykktar er eingöngu kosið um tvo aðalmenn í stjórn)
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Kosning stjórnar MMK
- Kosning fulltrúa í nefndir og samtök sem KRFÍ á aðild að, þar á meðal aðal- og varafulltrúa á aðalfund EWL
- Önnur mál og afgreiðsla ályktana fundarins
- Fundi slitið
Séu einhverjar spurningar varðandi fundinn, vinsamlegast hafið samband við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastýru Kvenréttindafélagsins í gegnum audur@krfi.is
Hlökkum til að sjá sem flest!
.