Halla Tómasdóttir, annar stofnenda Auðar Capital og starfandi stjórnarformaður, hlaut jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar árið 2008 fyrir frumkvöðlastarf og gott fordæmi kvenna á öllum aldri. Hallar stofnaði fyrirtækið Auði Capital síðasta vetur í samvinnu við Kristínu Pétursdóttur. Auður Capital sérhæfir sig í viðskiptum við fyrirtæki þar sem konur eru í lykilhlutverki enda hafi rannsóknir sýnt að slík fyrirtæki skili meiri arðsemi. Fyrirtækið sér viðskiptatækifæri í þeim þjóðfélagsbreytingum sem felast í bættri menntun kvenna og auknum fjárráðum þeirra.