Alcoa Fjarðaál hlaut viðurkenningu Jafnréttisráðs í ár fyrir störf sín í á sviði jafnréttismála. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, afhenti verðlaunin. Í greinargerð Jafnréttisráðs vegna viðurkenningarinnar segir að Alcoa Fjarðaál vinni eftir nýrri jafnréttisáætlun, sem tekur mið af nýsamþykktum jafnréttislögum. Með henni fylgi metnaðarfull framkvæmdaáætlun sem leggur áherslu á áframhaldandi jöfnun kynjahlutfalls starfsmanna á öllum sviðum, áætlun um að tryggja launajafnrétti og samræmingu atvinnu og fjölskyldulífs. Athygli vekja áætlanir um að hvetja og styrkja konur til iðnmenntunar og áhersla á að bæði kynin noti rétt sinn til fæðingarorlofs og veikindadaga barna.
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, tók við verðlaununum úr hendi ráðherra, postulínsstyttu eftir Guðrúnu Indriðadóttur sem ber heitið Snúum bökum saman. Verðlaunin voru afhent 24. október.