Tímaritið 19. júní kom út samnefndan dag og er hægt að nálgast blaðið í öllum helstu bókabúðum Pennans og á skrifstofu KRFÍ á Hallveigarstöðum. Rétt er að taka það fram að í grein Lillý Valgerðar Pétursdóttur á bls. 26-27 er villa í umfjölluninni um hlutfall kvenna á Alþingi. Í fyrirsögninni er sagt að konur séu (hlutfallslega) fæstar í Framsóknarflokknum á þingi en hið rétta er að þær eru fæstar í Sjálfstæðisflokknum. Sem útgefandi tímaritsins biðst KRFÍ hlutaðeigandi velvirðingar á mistökunum.
Kvenréttindafélag Íslands2009-06-21T14:40:46+00:00júní 21st, 2009|Almennar fréttir|Slökkt á athugasemdum við Tímaritið 19. júní