
Kvenréttindafélag Íslands boðar hér með til aðalfundar þriðjudaginn 31. mars 2026 kl. 16:30-18:30 í Norræna húsinu. Aðgengi er fyrir öll á fundarstaðnum.
Tillögur og ályktanir skulu berast á netfang krfi@krfi.is, í síðasta lagi 24. mars.
Sjá fyrir neðan upplýsingar um skráningu á aðalfund og framboð til trúnaðarstarfa.
Fundarstaður og skráning
Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu og rafrænt. Öll sem hafa áhuga til að sitja aðalfund eru beðin að skrá sig.
Rafrænn kjörseðill og krækja í rafrænt fundarherbergi eru send öllum skráðum þátttakendum morguninn 31. mars.
Kallað er eftir framboðum
Allir skuldlausir félagar hafa kjörgengi og atkvæðisrétt á fundinum en kröfur fyrir félagsgjöldum 2025–2026 hafa verið sendar skráðum félögum.
Á fundinum er kosið um:
- þrjá fulltrúa í stjórn Kvenréttindafélags Íslands til tveggja ára
- þrjá varamenn í stjórn Kvenréttindafélags Íslands til eins árs
- tvo skoðunarmenn reikninga Kvenréttindafélags Íslands
- fimm stjórnarmenn og fimm varamenn í stjórn Menningar- og minningarsjóðs kvenna
Tilkynna þarf framboð fyrir 24. mars 2024 í gegnum skráningarformið
Dagskrá aðalfundar
- Setning aðalfundar
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Lögmæti fundarins staðfest
- Skýrslur stjórna KRFÍ. Laufeyjar og MMK lagðar fram
- Endurskoðaðir reikningar KRFÍ og MMK lagðir fram til samþykktar
- Ákvörðun tekin um upphæð félagsgjalds
- Tillögur um framkomnar lagabreytingar ef einhverjar eru
- Staðfesting á samþykktum Laufeyjar og staðfesting aðalfundar á stjórn Laufeyjar
- Kosning stjórnar
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Kosning stjórnar MMK
- Önnur mál og afgreiðsla ályktana fundarins
- Fundi slitið
Fylgigögn fundarins
Fylgigögn verða sett hér inn þegar nær dregur fundi.
Séu einhverjar spurningar varðandi fundinn, vinsamlegast hafið samband við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastýru Kvenréttindafélagsins í gegnum audur@krfi.is
Hlökkum til að sjá sem flest!
.

