Ályktun júní 2004

Kvenréttindafélag Íslands ítrekar mikilvægi þess að æðstu stofnanir samfélagsins og embættismenn þeirra virði jafnréttisáætlanir ríkisstjórnarinnar.


Kvenréttindafélag Íslands ítrekar mikilvægi þess að æðstu stofnanir samfélagsins og embættismenn þeirra virði jafnréttisáætlanir ríkisstjórnarinnar.  Í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum segir að hlutföll kynjanna í nefndum á vegum ríkisins skuli jöfnuð.  Það verður ekki gert með því að skipa nefndir eingöngu með körlum.  Því lýsir Kvenréttindafélag Íslands furðu á því hvernig nefnd forsætisráðherra, sem gera skal tillögur um framkvæmd fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu, er skipuð og skorar á forsætisráðherra að skipa jafnframt konur í nefndina.