Áskorun til íslenskra stjórnvalda að fullgilda samning SÞ um bann við kjarnorkuvopnum

Í dag tók samningur Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum (TPNW) gildi með 51 samþykktum undirskriftum. Alls samþykktu 122 aðildarríki samninginn á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í júlí 2017. 

Samningurinn er fyrsti og eini kynjamiðaði samningurinn um kjarnorkuvopn, enda ræðir formáli samningsins kynjavinkil kjarnorkuvopna og þau óhóflegu áhrif sem bæði kjarnorkuvopn og stríð hafa á konur. Eins leggur samningurinn áherslu á að konur séu virkir þáttakendur í öllum aðgerðum um afvopnun, enda sé þeirra þátttaka ómissandi í aðgerðum fyrir varanlegan frið.

Sem leiðandi í kvenréttindum ætti Ísland að vera á meðal þeirra ríkja sem skrifa undir samninginn. Kvenréttindafélagið tekur því undir eftirfarandi áskorun á ríkisstjórnina að samþykkja kjarnorkuafvopnun:

__

Eftirtalin félög skora á íslensk stjórnvöld að fullgilda Samning Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum en samningurinn var samþykktur af 122 ríkjum á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York þann 7. júlí 2017. Hinn 24. október sl. höfðu 50 ríki fullgilt samninginn og mun hann því taka gildi í dag, þann 22. janúar 2021

Samningurinn festir í sessi afdráttarlaust bann við notkun kjarnorkuvopna á grundvelli alþjóðlegra mannúðarlaga sem tryggja skal eyðingu og afnám slíkra vopna, sem og bann við framleiðslu, flutningi, þróun, prófun, geymslu eða hótunum um notkun þeirra. Samningurinn undirstrikar þá alvarlegu hættu sem stafar af áframhaldandi tilvist kjarnorkuvopna og þeim óafturkræfu og gereyðandi afleiðingum sem slík vopn valda. Samningurinn skuldbindur ríki einnig til að koma þolendum kjarnorkuvopnanotkunar og tilrauna til aðstoðar ásamt því að koma á endurbótum vegna mengaðs umhverfis af völdum þeirra.

Nýleg könnun á vegum International Campaign to Abolish Nuclear Weapons (ICAN) á Íslandi leiddi í ljós að 86% þeirra sem spurðir voru eru hlynntir gildistöku samningsins á Íslandi. Þá eru jafnframt 75% hlynntir því að Ísland verði fyrst NATO ríkja til að skrifa undir og fullgilda samninginn. Sambærilegar kannanir voru gerðar í Belgíu, Danmörku, Hollandi, Ítalíu og á Spáni og leiddu í ljós að nálægt eða yfir 80% eru fylgjandi samningnum og endurspegla þannig yfirgnæfandi stuðning almennings í þessum ríkjum gagnvart samningnum og gildistöku hans.

Kjarnorkuvopn hafa í för með sér óafturkræfan eyðileggingarmátt. Engin læknis- eða mannúðaraðstoð er möguleg strax í kjölfar kjarnorkuárásar. Til frambúðar hefur slík árás skelfilegar afleiðingar fyrir mannfólk, dýraríki, umhverfi og loftslag, svo ekki sé minnst á neikvæð áhrif á landbúnaðarframleiðslu, ásamt skyndilegri hitalækkun og minnkun úrkomu á heimsvísu vegna reyks og rykmyndunar. Bann við kjarnorkuvopnum er því eina tryggingin gegn notkun slíkra vopna og þeim afleiðingum sem notkun þeirra hefur í för með sér.

Við undirrituð hvetjum íslensk stjórnvöld til þess að veita vilja almennings vægi og taka skref í átt að fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum. Aðild Íslands að samningnum er nauðsynleg til að stuðla að vernd almennra borgara, lífríkis og náttúru til framtíðar og styrkja enn fremur stöðu þeirra alþjóðlegu samninga um kjarnorkuvopn sem Ísland á nú þegar aðild að. Með undirritun og fullgildingu samningsins er fyllt upp í mikilvægar eyður sem fyrri samningar hafa ekki kveðið á um.

Nánari upplýsingar um ICAN og skoðanakönnunina má nálgast hér:

https://www.icanw.org/nato_poll_2021

  • Alda félag um sjálfbærni og lýðræði
  • Alþýðusamband Íslands
  • Íslandsdeild Amnesty International
  • Barnaheill
  • Biskupsstofa
  • Hjálparstarf kirkjunnar
  • Húmanistahreyfingin
  • Höfði friðarsetur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands
  • Kvenréttindafélag Íslands
  • Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
  • Landssamtökin Þroskahjálp
  • Læknafélag Íslands
  • Mannréttindaskrifstofa Íslands
  • Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna
  • Náttúruverndarsamtök Íslands
  • Rauði krossinn á Íslandi
  • Samtök hernaðarandstæðinga
  • Samtökin 78
  • Siðmennt
  • Soka Gakkai International á Íslandi
  • UNICEF á Íslandi
  • UN Women á Íslandi
  • Öryrkjabandalag Íslands