Ástandið á Gaza

Stjórn Kvenréttindafélags Íslands sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu, sunnudaginn 18. janúar:

Stjórn Kvenréttindafélags Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við fundinn í Háskólabíói: Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza. Stjórnin fordæmir það ofbeldi sem er viðhaft í hernaði Ísraels gegn Palestínumönnum á Gaza og kemur hvað harðast niður á konum og börnum.